hæhó
Við sem erum svo kúl að eiga eigin bloggsíðu
19.12.2007 19:06:16 / ninnaP

Jeeeeminnn


» 0 hafa sagt sína skoðun

03.05.2007 04:35:44 / bjarnheiður

Nattevakter

jæja þá er maður bara á næturvaktinni.  Soldið þreytt og bara rólegt að gera.

Núna þessa dagana er ég að læra á fullu fyrir sérhæft endurlífgunar námskeið sem ég er að fara á 14-15 maí.  Það er próf og allt þannig að það er um að gera að standa sig.

Svo er kvennareiðin 19 maí og svo á ég nú víst ammili.

kv Bjarnheiður


» 1 hafa sagt sína skoðun

23.04.2007 14:55:09 / bjarnheiður

vinna-djamma-vinna-djamma

Svona er líf mitt núna.  Bara vinna,djamma, vinna aðeins meira, djamma svo aðeins meira.  Reyndar er ég alltaf voðalega stillt á djamminu og fer alltaf voða snemma heim.  Ég held að ég sé orðin allt of gömul fyrir þetta.

Ég var sem sagt að vinna um helgina tólf tíma vaktir og ég var svo þreytt eftir það að ég svaf til hádegis í dag.  djíses ég þoli nú ekki neitt.  En það var gott að sofa út í yndislega góðu rúmi.  Ekki einhverjum bedda þar sem spíturnar undir dýnunni stingast í bakið og mjaðmirnar á manni.  Svoleiðis var sko rúmið mitt í Malawi og ekki sjens að sofa út í þvi rúmi.:S

Næsta föstudag er ég að fara á tónleika með annari hljómsveit sem ég veit heldur ekkert um.  Hún er frönsk og heitir Nouvelle Vaque.  Aftur að fara með stelpunum í vinnunni.  Ég er dugleg að klína mér með þeim á tónleika.  Sama kvöld er líka árshátíð hjá vinnunni, við kannski kíkjum þangað eftir tónleikana.  Aldrei að vita.  Síðasta föstudag fór ég út að borða á Tapas.  Það var æði, fór með stelpunum úr hjúkkubekknum.  Alltaf gott að fara á Tapas.  En ég fór svo bara heim kl 11 því ég var að fara að vinna daginn eftir.  Það ætluðu víst allir í eldheita stemmningu á Pravda á eftir.....hehe:haha:

Ég er að spá í að klippa mig stutt, hvað finnst ykkur um það.  Haldið þið að það verði kúl, gera einhverja kúl klippingu........

Hvað er annars að frétta af ykkur.  Þið mættuð alveg fara að blogga hérna stelpur mínar.

kv Bjarnheiður


» 0 hafa sagt sína skoðun

14.04.2007 15:03:54 / trína

Get ekki sagt að ég hafi of mikið að gera...

Eiginlega er ég alveg að byrja að migggla hérna... þó hún dóttir mín sé yndisleg.. þá er ég nú alveg tilbúin að fara að komast út að vinna.  EF ég myndi einhverntíma fá einhverja vinnu..sjitt gengur svoldið hægar en ég hélt.  Þegar maður er alla daga einn heima með svona smá skott ... þá er maður nú eiginlega bara ekki samræðuhæfur... da da da lala  vaaaa vaaa ma da la vahh bahh.. er svona það helsta sem Kristey hefur að segja, sem er áhugavert útaf fyrir sig en semsagt mér leiðist oft svoldið.. væri alveg til í að hitta fullorðið fólk oftar ;).  En það dugir víst ekkert svona vælllll.  Kristey er æði annars og voða kát og hress oftast EN vaknar skrilljón sinnum á nóttunni .. get ekki sagt að mér líki það vel 8|

ÉG er nammigrís og langar ógeðslega í nammi.. en ég fæ ekkert, það er bannað... seigi ég sko... en ég held ég sé svodið manísk þegar að því kemur... hugsa um það á næstum hverjum deigi úffff... erfitt að hafa sjálfsstjórn, en... mér hefur gengið vel... hef gott af því að læra smá AGA hohho.

Annars er ég orðin alveg verulega klútsþurfi... ha???

Úff ég er annars í vandræðum með hana dóttur mína... hún er sjúk í að BORÐA pappír... klósettrúllur eru til dæmis ótrúlega góður matur... oooooooooooooojjjjjjjjj og svo trylllist hún bara þegar maður tekur svona góðgæti frá henni ehhhh.  Hvað skal gjöra.  Ef það finnast líka einhver korn á gólfinu í hýbílum vorum... þá er daman nú ekki lengi að tína þau upp í sig :|.  Svo er líka vinsælt að smakka svoldið á skónum frammi í forstofu úfffff borða bara allt sem á ekki að borða !!! Finnst ykkur þetta ekki svoldið kresí :lol:

Jæja þetta er aldeilis orðið langt blogg um bara ekki neitt .. en blogg var það.

 OAO, Katarínus


» 2 hafa sagt sína skoðun

13.04.2007 17:52:48 / bjarnheiður

Það heitasta um helgina

jæja þá er maður byrjaður að vinna á fullu og lífið farið að ganga sinn vanagang aftur.  Var að klára tvær næturvaktir og komin í helgarfrí.

Í kvöld er ég að fara á tónleika á Nasa með Peter, Björn og John.  Ég hef reyndar aldrei heyrt neitt með þessum hljómlistamönnum en er sagt að þeir séu rosa góðir og eru víst voða vinsælir8).  já já svona er maður út úr öllu ennþá.  Ég las í mogganum eitthvað um þá og þar stóð: " hver er ekki með lagið dúrírúrí (man ekki hvað það heitir) á heilanum".  Ég hugsaði, ja, allavegana ekki ég!;)

Við ætlum sem sagt nokkrar úr vinnuni að fara saman og kíkja á þessa gæja, kannski eru þeir líka bara sætir þannig að þetta verður kannski líka eitthvað fyrir augað........;)

En annars vil ég óska henni Ásu Ninnu og Gumma hennar til hamingju með drenginn sem er á leiðinni.  Hann á víst að heita Kalli samkvæmt Patreki.:D

Jæja bæjó í bili þó

Bjarnheiður


» 1 hafa sagt sína skoðun

08.04.2007 23:30:37 / bjarnheiður

Nýír tímar, áfram með bloggið

Jæja, það hefur greinilega ekkert verið bloggað í 7 mánuði!!!!!

ég hef því ákveðið að endurvekja þetta blogg.  :!:

Maður er nú svona að venjast vestrænum menningarheimi svona eftir að hafa verið í henni Afríku í 6 og hálfan mánuð.  Þetta er allt að koma, búin að lita á mér hárið og svoleiðis.:)

Gleðilega Páska stúlkur!  Vonandi hafið þið haft það gott um páskana.  Ég hef nú haft það voðalega gott.  Vann smá og svo var ég bara á selfossinu að spóka mig.  Fór á hestbak og kíkti aðeins á pakkhúsið á föstudaginn langa.  Sindri gaf mér páskaegg þannig að ég var alsæl.:haha:  Ég hef ekki fengið páskaegg í allavegana 10 ár.:S

 Hvenær á svo að halda næsta klút?

kv Bjarnheiður


» 2 hafa sagt sína skoðun

30.08.2006 21:50:18 / hildur

klútur,klútur,klútur,klútur

Er að spá í að skella á klút núna á þriðjud. heima hjá mér. Þetta verður svona smá kveðju klútur fyrir Bjarnheiði, líka svona hæ við Ragnheiði með enga bumbu og eiginlega líka Katrínu, gæti jafnvel verið að það verði auka meðlimur með, hún Kristey. Já það er ekki seinna vænna en að kynna hana fyrir svona klúbbastarfsemi;) Held að Ragnheiðar og Óladóttir sé aðeins of ung........ kannski í næsta.

Þá er ég bara ein eftir með bumbu???????????????? er það ekki annars, lumar einhver á leyndó????????????????????????????????

   Vonandi komast allir, ég smsa ykkur..................-H-

» 2 hafa sagt sína skoðun

25.08.2006 19:09:00 / ninnaP

Jiiiiiiiieminnn

Guð stelpur ég er skammast mín í poka... ég var bara steinbúin að gleyma þessu bloggi.. típískt ég alveg... TIL HAMINGJU RAGNHEIÐUR...... veiveivei.... önnur stelpa.... Hvað kemur svo Hilla Pill með...??? Verð að fara að heyra í ykkur... Held að ég sé næst með klút... spurnig um að slá dagsetningu... einhverjar hugmyndir????

» 2 hafa sagt sína skoðun

24.08.2006 20:33:27 / bjarnheiður

jæja, það er komin ný vinkona

Eins og þið líklega vitið þá er komin ný vinkona í barnahópinn. Ragnheiður eignaðist stúlku í morgun kl 8. Stúlkan vó 4090gr og 52 cm. Þessar upplýsingar hef ég úr sms-i og veit nú ekki meira nema að öllum heilsast vel. En það þurfti nottla að setja stelpuna af stað. Jæja vildi bara koma þessu að hérna. Ragnheiður verður svo að vera með meiri upplýsingar.(ath þessar upplýsingar birtast hér án vitundar umræddra stúlkna þannig að ég ber fulla ábyrgð á þessum skrifum;)) kv Bé

» 2 hafa sagt sína skoðun

22.08.2006 16:29:36 / trína

já þabbarra sonna

Jæja best að pósta aðeins fyrst það er farið að hreyfast hérna eitthvað

Ég sit nú bara hérna heima og bora í nefið meðan stúlkan mín sefur á sínu græna!!  Er öll að koma til eftir fjárans aðgerðina sem ég fór í á föstudaginn síðasta.  Ef þið vissuð það ekki þá fékk ég nebblea þessa fínu sýkingu í brjóstið út frá stíflu og það þurfti að svæfa mig, skera, fá sýklalyf og vesen... og nú er ég með rör út úr öðru mjólkurbúinu og heví umbúðir... jammí!!  En það verður svo tekið á morgunn.  Já svona er þetta barasta; auðveld meðganga, auðveld fæðing, auðvelt barn.... hinsvegar smá vésen með the boobs.  En þetta er vonandi búið núna... annars verð ég brjál. 

Er farin að hlakka geðv til bekkjarmótsins þann 9. sept.. það verður sennilega mitt fyrsta "night out" svona að eitthverju marki... ætla reyndar líklega að kíkja í kveðjupartý til Bé á föstudaginn... ef ég verð komin á það stig heilsulega séð, hope so.  Já svo segi ég nú bara það sama og hún Hillarý.... hvað með klút..?? Ég myndi mæta skoooo :lol:  Alltaf til í eitthvað sem bregður út frá hversdagsleikanum;)

En jæja þá læt þetta duga í bili, K


» 1 hafa sagt sína skoðun

21.08.2006 21:19:56 / bjarnheiður

bless bless

Jæja þá fer að koma að því....ég fer til Afríku eftir þrjár vikur.  Af því tilefni höfum við afríkufararnir ákveðið að halda kveðjupartý föstudaginn 25.ágúst kl 20.

Partýið verður haldið á Leifsgöu 11 heima hjá Ástu og Bjarnheiði og ykkur er öllum boðið:)  Markmiðið er að klára úr vínskápnum;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

17.08.2006 05:52:19 / bjarnheiður

Sundlaugarferðir

Rosalega eru alltaf sætir strákar í sundi........


» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4